Kærleikur og tími

Kærleikur og tíminn lækna sár
Eitt tár í tímans hafi hundrað ár
Við erum vinir þú og ég
Og við örkum þennan veg
Þú og ég, þú og ég, þú og ég
Hamingjan er fyrir handan horn
Hún liggur þar og bíður stundarkorn
Og við röltum þú og ég
öðru hvoru þennan veg
Þú og ég, þú og ég, þú og ég.
Eitt er víst og engu fær því breitt
Að þú og ég við erum yfirleitt
Alveg eins og vera ber
alveg sama hvernig fer
Þú og ég, þú og ég, þú og ég.
Í andans heimi er vítt til veggja og hátt
og sáttardyrum lokið upp á gátt
Týndir sauðir tínast heim
teknir opnum höndum tveim
Hönd í hönd saman við þú og ég.
Kærleikur og tíminn lækna sár
Eitt tár í tímans hafi hundrað ár
Við erum vinir þú og ég
Og við örkum þennan veg
Þú og ég, þú og ég, þú og ég
Já já
Þú og ég, þú og ég, þú og ég
Já já já
Þú og ég, þú og ég, þú og ég



Credits
Writer(s): Kristjan Kristjansson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link