Fram í heiðanna ró

Fram í heiðanna ró
fann ég bólstað og bjó
þar sem birkið og fjalldrapinn grær
Þar er vistin mér góð
aldrei heyrist þar hnjóð
þar er himininn víður og tær

Heiðarbóli ég bý
þar sem birkið og fjalldrapinn grær
Þar er vistin mér góð
aldrei heyrist þar hnjóð
þar er himininn víður og tær

Mörg hin steinhljóðu kvöld
upp í stjarnanna fjöld
hef ég starað í spyrjandi þrá
Mundi dýrðin í geim
bera af dásemdum þeim
sem vor draumfagri jarðheimur á

Heiðarbóli ég bý
þar sem birkið og fjalldrapinn grær
Þar er vistin mér góð
aldrei heyrist þar hnjóð
þar er himininn víður og tær
þar er himininn víður og tær.



Credits
Writer(s): Traditional, Kristjan Kristjansson, Magnus Eiriksson, Fridrik A Fridriksson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link