Draumaprinsinn

Í mannfjöldanum geng ég ein og þekki ekki neinn,
þúsundir bíla þjóta hjá þegar tilveran er grá.
Á ball um þessa helgi margur vongóður fer
með Bakkusi út að skemmta sér, kannski skelli ég mér.
Kannski sé ég draumaprinsinn Benóný á ballinu,
hann leggur sterkan arm um minn barm
og við svífum í eilífðar dans, eilífðar dans.
Allir eru að eldast, missa tennur og hár,
aldir og ár senn renna í eitt og mér þykir það leitt.
Vinur kæri vinur, viltu ekki elska mig heitt,
svo skal ég ekki biðja um neitt, ekki biðja um neitt.
Kannski sé ég draumaprinsinn Benjamín á ballinu,
hann leggur sterkan arm um minn barm
og við svífum um eilífðar dans, eilífðar dans.



Credits
Writer(s): Magnus Eiriksson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link